Birkireyktur lax, birkireyktur silungur, birkireykt ýsa og grafinn lax — allt reykt í okkar eigin reykhúsi í Ólafsfirði.
Vörurnar eru seldar innanlands til verslana, hótela og veitingastaða.
„Við vinnum úr úrvals hráefni með vandvirkni og virðingu fyrir hefðinni.“

Lax og silungur eru reykt með mildum birkireyk við lágan hita — hægt ferli sem ekki er hægt að flýta. Við leggjum áherslu á gæði, ferskleika og stöðugleika í hverri einustu vöru.

Við erum íslenskt fiskvinnslufyrirtæki með um 30 ára reynslu af vinnslu laxfiska, með sérstaka áherslu á hágæða lax og silung. Fyrirtækið er staðsett í Ólafsfirði og hefur verið þar frá upphafi.
Við leggjum áherslu á sjálfbæra framleiðslu, vandað hráefni og góð vinnubrögð. Í dag eru vörurnar eftirsóttar sælkeravörur fyrir þá sem kunna að meta gæði, ferskleika og gott bragð.